16. febrúar - Sænsku hertogarnir Eiríkur og Valdimar, bræður Birgis Magnússonar konungs, létust í kastalanum Nyköpingshus, þar sem bróðir þeirra hafði varpað þeim í dýflissu. Ekki er ljóst hvort þeir dóu úr hungri eða voru drepnir.
Jóhannes 22. páfi lýsti því yfir að kenningar Fransiskana um fátækt kirkjunnar væru rangar.
Búfjárpest gekk um Evrópu og lagðist bæði á nautgripi og sauðfé.