Annálar greina frá því að Ásmundur kastanrassi hafi komið í Breiðafjörð frá Grænlandi og Krosseyjum og hafi verið á skipi sem neglt var með trénöglum einum og bundið með seymi.
Þrír biskupar voru á Íslandi að því er segir í annálum og hefur einn þeirra verið Jón Grænlandsbiskup.
Hinrik 2. Englandskonungur batt endi á styrjaldarátök við Ríkharð son sinn og Filippus 2. Frakkakonung með því að fallast á allar kröfur þeirra. Hann greiddi Filippusi háa fjárhæð og viðurkenndi Ríkharð sem erfingja að ensku krúnunni.