Stafkirkjan í Vestmannaeyjum, reist til að minnast 1000 ára afmælis kristnitökunnar.Heilagur Stefán eða Stefán 1. Ungverjalandskonungur. Mynd úr handriti frá 14. öld.
Júlí - Hjalti Skeggjason og Gissur Teitsson komu til Alþingis á Þingvöllum til þess að boða kristni. Lá við að þingheimur berðist en þó tókst að stilla til friðar. Á þingi árið áður hafði Hjalti hallmælt Freyju og kallað hana grey (= tík) og var þá heiðnum mönnum nóg boðið.
Júlí - Kristnitakan: Samþykkt var á Alþingi að Íslendingar skyldu taka kristni í orði kveðnu. Ýmsum heiðnum siðum mátti þó fylgja ef ekki væri hægt að sanna þá á menn, svo sem eins og útburð barna og hrossakjötsát.