EJS ehf. | |
Rekstrarform | Upplýsingafyrirtæki |
---|---|
Slagorð | Það er til lausn á öllu |
Stofnað | 1939 |
Staðsetning | Grensásvegi 10 Reykjavík Ísland |
Lykilpersónur | Bjarni Birgisson, stjórnarformaður EJS hf. |
Starfsemi | Upplýsingatækni |
Vefsíða | Heimasíða EJS ehf. |
Fyrirtækið EJS ehf. (áður Einar J. Skúlason) var umboðsaðili Dell á Íslandi. EJS ehf. var stofnað af Einari J. Skúlasyni árið 1939 en fyrirtækið einbeitti sér að nútíma upplýsinga- og samskiptatækni. EJS er nú hluti af Advania.[1]
Starfsemin hófst með rekstri á skrifvélaverkstæði sem síðar varð að verslun og innflutnings- og þjónustufyrirtæki fyrir skrifstofuvélar. Fljótlega bættist einnig við sala á búðarkössum.
Í byrjun níunda áratugarins hóf fyrirtækið að þreifa fyrir sér í tölvumálum. Helstu bankastofnanir landsins gerðu við það langtímasamning um beinlínutengingu og heildartölvuvæðingu á afgreiðslukerfum. Í kjölfarið, árið 1984, var fyrirtækið gert að hlutafélagi. Skömmu síðar seldi Einar, stofnandi þess, nokkrum starfsmönnum hlut sinn og hætti alfarið afskiptum af fyrirtækinu fyrir aldurs sakir. Einar er nú látinn.