Fallbeyging | |
Nefnifall | Berglind |
Þolfall | Berglind
Berglindi Berglindu |
Þágufall | Berglind
Berglindi Berglindu |
Eignarfall | Berglindar |
Notkun núlifandi¹ | |
Fyrsta eiginnafn | 1.047² |
Seinni eiginnöfn | 231 |
¹Heimild: þjóðskrá júlí 2007 ²Heimild: 2023 Eiginnöfn kvenna Hagstofan | |
Listi yfir íslensk mannanöfn |
Berglind er íslenskt kvenmannsnafn. Nafnið hefur þrjár jafngildar beygingar í þol- og þágufalli. Beygingin Berglindi virðist þó vera mest notuð um þessar mundir. Í bókinni Nöfn Islendinga, sem Heimskringla gaf út árið 1991, segir að nafnið Berglind sé líklega myndað af nafni Lindberghs flugkappa. Fyrst var farið að gefa nafnið á áratugnum 1931-1940.
Gögnin eru unnin upp úr Þjóðskrá Íslands fyrir árabilið 1950-2006. Dökku súlurnar sýna fjölda nafngifta fyrir nafnið sem fyrsta nafn og ljósu súlurnar sem seinna eiginnafn það árið. Hlutfallstölur eru reiknaðar út frá fjölda nafngifta af samþykktum íslenskum nöfnum, hlutfall seinna nafns er reiknað út frá heildarfjölda seinni eiginnafna það árið.