Athyglisbrestur er taugaröskun sem veldur einbeitingarskorti ýmist með ofvirkni (og kallast þá ADHD)[a] eða án (ADD).[b] Auk einbeitingarskorts einkennis athyglisbrestur með ofvirkni oft af hvatvísi og sumir eiga erfitt með að hafa stjórn á eigin tilfinningum.[1][2][3][4] Greining byggist á því hvort einbeitingarskortur hafi verið til staðar í meira en hálft ár, valdi viðkomandi vandræðum t.d. heima eða í skóla, og hvort einkenni hafi komið fram í barnæsku.[5][6]
Meðferð inniheldur atferlismeðferð og lyf á við örvandi lyfið metýlfenídat (Rítalín).[7]
Talið er að athyglisbrestur sé tengdur brenglun í boðefnakerfi heilans, þá sérstaklega heilaboðefnunum dópamíni og noradrenalíni.
Hugtakið Athyglisbrestur kom fyrst fram í kynningarbæklingi Foreldrafélags misþroska barna við stofnun þess árið 1988.