Robert Baden-Powell.Dvergarnir sjö.Neville Chamberlain snýr heim frá München og tilkynnir á flugvellinum um „frið um vora daga“.Súdetaþjóðverjar fagna komu þýska hersins.
20. ágúst - Bifreið ók út í Tungufljót. Guðrún Lárusdóttir alþingismaður og tvær dætur hennar drukknuðu en eiginmaður hennar og bílstjórinn björguðust.
13. september - Súdetaþjóðverjar hófu uppreisn gegn stjórn Tékka. Uppreisnin var kæfð niður en Neville Chamberlain, forsætisráðherra Bretlands, sendi Adolf Hitler símskeyti og fór fram á fund um Súdetaland.
9. – 10. nóvember - Kristalsnótt. Gyðingaofsóknir stigmögnuðust í Þýskalandi. 7.500 verslanir Gyðinga voru eyðilagðar, 267 bænahús voru brennd og 91 Gyðingur lést.