Jón Sigmundsson kvæntist Guðrúnu Gunnlaugsdóttur, fyrri konu sinni, og var brúðkaupsveislan haldin í Víðidalstungu. Var þar margt manna samankomið og mikið drukkið.
Ásgrímur Sigmundsson var veginn í bardaga í kirkjugarðinum í Víðidalstungu í brúðkaupi Jóns bróður síns. Það leiddi til Morðbréfamálsins löngu síðar.
17. maí - Jóhann 1., konungur Kastilíu og León, gekk að eiga Beatrísu af Portúgal, sem þá var tíu ára að aldri.
22. október - Beatrísa af Portúgal erfði ríkið eftir lát föður síns, Ferdínands 1. Portúgalskonungs. Portúgalir sættu sig ekki við að lúta stjórn eiginmanns hennar, Jóhanns Kastilíukonung, og risu upp undir forystu Jóhanns af Avis, óskilgetins hálfbróður Ferdínands. Borgarastyrjöldinni lauk 1385 með sigri Jóhanns af Avis, sem varð þá Jóhann 1. Portúgalskonungur.